Síðast uppfært: 9. ágúst 2026
Eyða Eldur-aðgangi
Þessi síða á við um Eldur, uppskriftaforritið frá Kuldico. Hér útskýrum við hvernig þú eyðir aðganginum þínum, hverju er eytt og hverju er haldið eftir.
Að eyða aðgangi í appinu
Fljótlegasta leiðin, og hún tekur gildi strax:
- Opnaðu Eldur appið og skráðu þig inn.
- Ýttu á Prófíll neðst til hægri.
- Ýttu á tannhjólið (Stillingar).
- Veldu Eyða aðgangi neðst á síðunni.
- Lestu yfirlitið og staðfestu með Eyða aðganginum.
Aðganginum og gögnunum er eytt um leið og þú staðfestir. Þetta er endanlegt og ekki er hægt að endurheimta gögnin.
Að biðja um eyðingu með tölvupósti
Ef þú kemst ekki inn í appið — til dæmis ef þú hefur eytt því eða misst aðgang að reikningnum — sendu þá tölvupóst á eldur@kuldico.com af því netfangi sem þú notaðir við skráningu, með efnislínunni „Eyða aðgangi".
Við staðfestum beiðnina og eyðum aðganginum innan 30 daga, yfirleitt mun fyrr. Ef við getum ekki staðfest að beiðnin komi frá eiganda aðgangsins gætum við þurft að biðja um frekari staðfestingu áður en við eyðum nokkru.
Hverju er eytt
Þegar aðgangi er eytt fjarlægjum við varanlega:
- Aðganginn þinn: nafn, netfang, lykilorð, lýsingu (bio), tengla og prófílmynd
- Allar uppskriftir sem þú hefur búið til, ásamt myndum af þeim
- Allar uppskriftir sem þú hefur vistað, og listana sem þú raðaðir þeim í
- Matreiðslubækurnar þínar
- Fylgjendur þína og þá sem þú fylgir
- Athugasemdir sem þú hefur skilið eftir á uppskriftum
- Bragðóskir þínar og notkunarsögu (hvað þú skoðaðir og eldaðir)
- Innskráningarlykla og endurstillingarkóða fyrir lykilorð
Hverju er haldið eftir, og hversu lengi
- Tilkynningar um efni — ef þú hefur tilkynnt uppskrift eða notanda geymum við tilkynninguna sjálfa án tengingar við þig svo hægt sé að ljúka umsjón málsins. Nafn þitt og auðkenni eru fjarlægð.
- Ábendingar um appið — skilaboð sem þú hefur sent okkur í gegnum „Senda álit" eru geymd án tengingar við þig, svo við getum unnið áfram úr villutilkynningum.
- Öryggisafrit af gagnagrunni — gögnin þín geta verið í afritum í allt að 30 daga eftir eyðingu. Afritin eru ekki notuð nema til að endurheimta kerfið eftir bilun, og gögnunum er eytt úr þeim þegar afritin renna út.
- Villuskýrslur — tæknilegar villuskýrslur hjá Sentry geta innihaldið auðkenni aðgangsins þíns í allt að 90 daga áður en þeim er eytt sjálfkrafa.
- Lögbundin varðveisla — ef okkur ber lagaleg skylda til að geyma tilteknar upplýsingar lengur gerum við það aðeins að því marki sem lög krefjast.
Nánar
Sjá persónuverndarstefnuna fyrir upplýsingar um hvaða gögnum við söfnum og hvernig við vinnum úr þeim, og skilmálana fyrir almenn notkunarskilyrði.
Spurningar um eyðingu gagna? Sendu okkur línu á eldur@kuldico.com.
Deleting your Eldur account (English)
This page applies to Eldur, the recipe app by Kuldico.
In the app: open Eldur and sign in, tap Prófíll (Profile, bottom right), tap the gear icon (Stillingar / Settings), choose Eyða aðgangi (Delete account), then confirm. Deletion is immediate and permanent. You can switch the app to English under Settings → Tungumál.
By email: if you can't access the app, email eldur@kuldico.com from your registered address with the subject "Delete account". We delete the account within 30 days, usually sooner.
Deleted: your account (name, email, password, bio, links, profile photo), every recipe you created and its photos, your saved recipes and lists, your cookbooks, your follows and followers, feedback you left on recipes, your taste preferences and activity history, and all login tokens.
Kept: content reports and app feedback you submitted are retained without any link to you so moderation and bug reports can be completed. Database backups may contain your data for up to 30 days. Technical error reports in Sentry may contain your account ID for up to 90 days. Anything we are legally required to retain is kept only as long as the law requires.